Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi - Þingmenn og varaþingmenn

Þingmenn og varaþingmenn

Árni M. Mathiesen
Árni er fæddur í Reykjavík 2. október árið 1958. Árni er kvæntur Steinunni Kristínu Friðjónsdóttur flugfreyju og eiga þau saman þrjár dætur. Árni útskrifaðist sem stúdent frá Flensborgarskóla árið 1978 og tók embættispróf í dýralækningum frá háskólanum í Edinborg árið 1983. Þá lauk Árni prófi í fisksjúkdómafræði frá Stirling-háskóla árið 1985.

Árni starfaði við almenn dýralæknisstörf á Vopnafirði, í Árnessýslu og Gullbringu- og Kjósarsýslu 1983-1985 og sem dýralæknir fisksjúkdóma 1985-1995.

Árni sat á Alþingi árið 1991-2003 fyrir Suðvesturkjördæmi og hefur verið 1. þingmaður Suðurkjördæmis síðan 2007 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Árni var sjávarútvegsráðherra frá 1999-2005 og hefur verið fjármálaráðherra frá 2005.

Kjartan Ólafsson
Kjartan er fæddur í Reykjavík 2. nóvember 1953. Kjartan er kvæntur Örnu Kristínu Hjaltadóttur skrifstofumanni og eiga þau þrjú börn. Kjartan var áður ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands og fjármálastjóri þess frá árinu 1986 til 1998. Kjartan hefur gengt fjölmörgum trúnaðarstörfum tengdum landbúnaði og skógrækt.

Kjartan tók fyrst sæti á Alþingi árið 2001 og situr nú í umhverfis-, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd þingsins ásamt því að sitja í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.

Árni Johnsen
Árni er fæddur Í Vestmannaeyjum 1. mars 1944. Árni er kvæntur Halldóru Filippusdóttur flugfreyju og eiga þau saman einn son. Árni lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1966 og starfaði um tíma sem kennari bæði í Vestmannaeyjum og Reykjavík.

Árni tók fyrst sæti á Alþingi árið 1983 og sat til ársins 1987 og síðan aftur frá árinu 1991 til 2001. Árni tók sæti á Alþingi vorið 2007 og situr í samgöngu-, menntamála- og félag- og tryggingamálanefnd þingsins ásamt því að sitja í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins.

Björk Guðjónsdóttir
Björk er fædd í Keflavík 16. janúar árið 1954. Björk er gift Otto Jörgensen flugvirkja og eiga þau saman eina dóttur. Björk lauk gagnfræðiprófi í Keflavík árið 1970. Björk hefur um árabil setið í bæjarstjórn Reykjanesbæjar og hefur frá 2002 verið forseti bæjarstjórnar. Þá sat Björk í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2005-2007.

Björk tók sæti á Alþingi vorið 2007 og situr í fjárlaga-, iðnaðar- og viðskiptanefnd þingsins.


Varaþingmenn


Unnur Brá Konráðsdóttir
Unnur Brá er fædd 6. apríl árið 1974. Unnur Brá starfar sem sveitarstjóri í Rangárþingi Eystra.

Drífa Hjartardóttir
Drífa er fædd í Reykjavík 1. febrúar 1950. Drífa er gift Skúla Lýðssyni, bónda á Keldum á Rangárvöllum og eiga þau þrjá syni. Drífa hefur gengt ýmsum félagsstörfum og trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Meðal annars sat Drífa í hreppsnefnd Rangárvallahrepps um árabil ásamt því að vera í dag formaður Landsambands sjálfstæðiskvenna.

Drífa var þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árinu 1999 til 2007 og var m.a. formaður landbúnaðarnefndar Alþingis.

Guðjón Hjörleifsson
Guðjón er fæddur í Vestmannaeyjum 18. júní 1955. Guðjón er kvæntur Rósu E. Guðjónsdóttur starfsmanni á leikskóla og eiga þau fjögur börn. Guðjón starfaði áður meðal annars sem skrifstofustjóri og aðstoðarsparisjóðsstjóri í Sparisjóði Vestmannaeyja. Hann var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum frá árinu 1990 til 2002 og útibússtjóri Sjóvár Almennra hf. í Vestmannaeyjum frá 2002 til ársins 2003.

Guðjón sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn kjörtímabilið 2003-2007 og var m.a. formaður sjávarútvegsnefndar þingsins.

Grímur Gíslason
Grímur er fæddur í Vestmannaeyjum 26. apríl árið 1960.

.