Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi - Um suðurkjördæmi

Um Suðurkjördæmi

Suðurkjördæmi er landfræðilega stærsta kjördæmi landsins og í því eru rúmlega þrjátíu þúsund kjósendur í 20 sveitarfélögum. Það nær frá sveitarfélaginu Garði í vestri til Hornarfjarðar í austri. Í kjördæminu eru náttúruperlur á við Þingvelli, Vestmannaeyjar, Jökulsárlón, Gullfoss og Geysir auk Bláa lónsins. Í Suðurkjördæmi verður til 75% af allri orkuframframleiðslu þjóðarinnar og í kjördæminu er einstaklega fjölbreytt atvinnu- og mannlíf.

Í Suðurkjördæmi eru eftirtalin sveitarfélög:

  • Ásahreppur
  • Bláskógabyggð
  • Flóahreppur
  • Grindavíkurbær
  • Grímsnes- og Grafningshreppur
  • Hrunamannahreppur
  • Hveragerðisbær
  • Mýrdalshreppur
  • Rangárþing eystra
  • Rangárþing ytra
  • Reykjanesbær
  • Sandgerðisbær
  • Skaftárhreppur
  • Skeiða- og Gnúpverjahreppur
  • Sveitarfélagið Árborg
  • Sveitarfélagið Garður
  • Sveitarfélagið Hornafjörður
  • Sveitarfélagið Ölfus
  • Vatnsleysustrandarhreppur
  • Vestmannaeyjabær